kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

mánudagur, september 25, 2006

Nikolaj&Julie

skóla törnið er búið, og næsta að byrja...nema hvað að ég er bara að fara í 1 verklegt fag sem er Prjón til 8.okt... þannig að það er skemmtilegur tími frammundan... við eigum að vinna með mynstur... ekki leiðinlegt!!!
Eftir veikindin ákvað ég að fara í sund og ath hvort ég verði ekki orkumeiri ef ég hreyfi mig eitthvað að ráði...ég er búin að fara 2 og 500m duga í bili...
ég keyrði til Århus í dag með bílinn, en hann er á leiðinni til íslands og allt dótið hans Jóa með, en hann er komin með íbúð á Bergþórugötunni.... 40fm stúdíó íbúð... vei mig hlakkar svo til að koma heim í október...
Annars kynnti Katý mig fyrir dönsku DRAMA þáttunum "Nikolaj&Julie"... ég er búin að vera húkkt á þeim... þeir eru geðveikir...
Ta Ta
k

mánudagur, september 18, 2006

sona sona ég skal hugga þig....

Hellú!!
Á föstudaginn í síðustu viku var ég svo stolt af mér, ég átti að kenna bekknum mínum eitthvað um vefinn sem ég setti upp...og já þetta er vefur í vefstól... ekki heimasíða!!! allavega þá gékk kennslan bara vel og ég fékk góð viðbrögð frá bekknum. :´)
Og til að kóróna stressið og álagið í skólanum þá varð ég veik á sunnudaginn...slöpp, máttlaus, með beinverki, hausverk (og ég fæ mjög sjaldan hausverk) og svitaköst á hágu stígi... en er þó ekki með hita... nú og það vita allir að þegar maður er hitalaus er maður ekkert veikur... þannig að ég er búin að vera rembast við að halda athygglinni við lærdóminn... var samt heima í dag og verð heima á morgun líka.... arggggg....það er svo týpiskt að verða veikur þegar eitthvað mikið lyggur við... ég átti að skila bróderi verkefni í dag sem er búið að ganga á aftur fótunum síðan ég byrjaði á því... frábært... ég vona bara að þetta sé svona 3 daga veiki og svo búið...
well... nóg af væli og voli...
Annars sendi mamma mér grein úr morgunblaðinu sem fjallar um páfagauk Rósu frænku (en hún er systir Bjössa pabba). páfagaukurinn heitir Bibblína og "kann" að tala... hann (Bíbbalína varð svo karlkyns eftir allt saman) kann að segja "Daníel farðu í bað" "sona sona ég skal hugga þig" , "Rósa hvar ertu?" , "Bíbbalaína vertu góð" og eitthvað fleira.. mér finnst svo skondið að páfagaukurinn kann að segja sona sona ég skal hugga þig.... mig langar í svona páfagauk til að hugga mig þegar ég er veik!!!
k

mánudagur, september 11, 2006

vanntar íbúð á íslandi

það er nú svosem lítið að frétta...nema að ég kem heim eftir 31 dag!!! veivei
en mig og Jóa (aðalega Jóa samt) vanntar íbúð, allavega fram að jólum á næsta ári... ef þið vitið um eitthvað endilega látið mig vita....
k

mánudagur, september 04, 2006

ALLT að gerast!!!

Já það er búið að vera svona brjálað að gera hjá mér.... alveg ótrúlegt hvað maður getur uppskorið vel af því sem maður sáir!!!
Í fyrra áttum við í bekknum að búa til uppskriftir og prjóna danska jólasveina eins og margir vita en tilgangurinn var með þessu var semsagt að uppskriftirnar voru sendar inn í "jólauppskriftablað" fyrir konublaðið Family Jornal... en ég var semsagt að fá að vita að jólasveinninn sem ég prjónaði var valinn ásamt 7 öðrum sveinum úr bekknum... að launum fæ ég 1000 kr danskar .... ég var ótrúlega ánægð með þetta....
svo var ég að fá að vita að Fjölbraut í Breiðholti býður mig velkomna til að fylgjast með kennslu hjá sér í október.. veivei...
OG SVO VAR ÉG á ROLING STONES TÓNLEIKUM!!!!!!!!!! ég er enþá ekki alveg að trúa þessu en þetta atvikaðist þannig að ég skutlaði Tommy í góðsemi minni í einhvern skóg því að þar var hópur af fólki sem var búin að ráða hann sem trjá/guide/klifrara... þetta fólk skemmti sér svo vel að klifra í trjám að það bauð Tommy 2 miða á verði eins á The Roling Stones sem spiluðu í Horsens á sunnudagskvöldið.... við ákváðum að þetta væri nú bara onceinalifetimeopertunity þannig að við drifum okkur á sunnudeginum til Horsens og skemmtum okkur ágætlega... hittum Kim vin hans en annars voru 85000 manns á tónleikunum og ég held barasta að ég hafi aldrei séð svona mikið af fólki nema kannski á markaðnum í Kumasi í Ghana. Þeir voru sprækir gömlu karlarnir og ég urlaðist þegar að þeir byrjuðu að spila "paint it black", en annars spiluðu þeir: jumpin´Jack Flash, It´s, Honky tonk women , you can´t always get what you want, Stisfaction, brown sugar, simpathy for the devil, og fleiri sem ég þekki ekki með nafni. hefði nú samt viljað heyra she´s the reinbow og wild horses... en maður segir nú bara takk fyrir mig og heldur kj að hafa fengið þetta tækifæri.... annars sér maður rétt glitta í "the licker" (munninn og tunguna). mátti sko ekki fara með myndavél inn en mátti hins vegar hafa síman minn sem er með crapy vél.
ég saknaði Jóa samt hrikalega.. hafið þið tekið eftir því að ef að eitthvað mikilvægt er að gerast í lífinu þá vill maður bara deila því með þeim sem maður elskar!!
Já og svo var mamma að segja mér að Crocodile Hunter Steve Irwin væri látinn!!!! omg hvað er að gerast... ég samhryggist fjölskyldunni hans rosalega... mér lýður eins og ég hafi mist vin!!!
well mér finnst þetta allt stór fréttir og er svo kát yfir þessu öllu saman. nema nátlega að steve er dáinn.. allt að gerast!!!