kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

sunnudagur, september 23, 2007

Maður er ekki textilskóla fyrir ekki neitt!

um daginn var ég að tala við Gauta, bekkjabróður minn síðan í Kvennó... og hvað haldið þið?.. hann er að fara flytja til Japan... mér finnst þetta alveg frábært af honum... að skella sér bara, en ástæða þess að hann er að fara að flytja er að þar býður hans yndisleg snót... EN málið er að hann er búin að pannta 2 lopapeysur (á sig og snótina).... rosalega er ég glöð með það... þannig að ef þú lesandi góður langar í eitthvað sem er prjónað, villt kaupa garnið en sérð ekki framm á að getað prjónað það sjálf(ur) þá er ég hér til þjónustu reiðubúin...

Annars fór ég í Blómaval og keypti mér ís um helgina... nammi namm, fór síðan á "Handverkshefð í hönnun" í Norræna húsinu en þetta er samsýning margra skóla frá öllu landinu... ágætis sýning. Einnig fór ég á aðra sýningu í Gerðubergi " Handverkshefði í hönnun" (heitir það líka) en þar eru hönnuðir, lista- og handverksfólk að sýna hlutina sína... very interesting allt saman...

Helga Rún var að keppa 3 leiki í handbolta og æfir hún með Gróttu... þær unnu alla sína leiki og voru bestar... komust í 1 deild... til hamingu með það elsku systir :)

fimmtudagur, september 20, 2007

Lífið er yndislegt!

Þá er ég komin heim og verð núna framm yfir áramót, þetta verður yndislegt að vera heima í svona langan tíma... og ekki spillir að búa á Kárastígnum með Jóa.
Á mánudaginn 24 sept byrja ég svo að vinna hjá Forvörsludeild Þjóðminjasafnsins og verð þar næstu 5 vikurnar... hlakka ofsalega mikið til að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig hjá þeim.
Ma og pa skruppu til Glasgow svo að ég verð að "passa" sistkynin um helgina, passa að þau viðri sig, borði og sofi í rúmminu sínu...
ég er nú ekki mikið rjómaísmanneskja en OMG hvað ísinn í Blómaval er góður... síðast fékk ég mér ís í boxi með karamellu ídýfu, lakkrískurli, daimkúlum og piparpúka dufti... mmmm fæ alveg vatn í munninn á að skrifa þetta...
heyrðu já og svo keypti ég "eletroniskabilledmaskinu um daginn og tók nokkrar myndir af djamminu í Viborg... ætla að reyna að setja þær inn um helgina.
Tommy panntaði lopapeysu þegar hann var hérna í sumar, hann keypti meira að segja garnið sjálfur í hana og bað mig um að prjóna hana, ég byrjaði á henni í gær... þetta er alveg voðalega skemmtilegt...
á þessum stutta tíma sem ég var í danmörku þá náði ég að prjóna 10 trefla, og 2 slå om peysu/ermar og eina sjalapeysu... allt í æðislegu prjónavélinni minni... ég á eftir að sauma flíkurnar saman og þvo treflana... svo set ég inn myndir á síðuna svo allir geti séð hvað ég var dugleg :)

Helgina verður róleg kannski ég fari bara í ísbíltúr
Sjáumst