... bara mest lítið...
Já alveg rétt ég var með blogg síðu!!! hehe... það er ótrúlega lítið að frétta héðan.
Ég er byrjuð í skólanum aftur og á þessari önn er í ég í prjóni og fatasaum. í síðustu viku var ég að læra á prjónavél.... það er ekkert smá gaman... ótrúlegir möguleikar sem fylgir því að getað prjónað í vél.... maður hefur ekkert fyrir því! Fyrsta verkefnið var trefill og gat maður valið um mismunandi mynstur/göt. ég var bara mjög ánægð með trefilinn minn.... ætla að reyna að setja inn myndir sem fyrst af honum.
Þóra og Benni og Tommy (danskur vinur okkar) voru í mat hjá okkur á föstudagskvöldið.. það var bara rólegheit og kósý stemming. svo kíktum við Jói út í gærkvöldi og hittum Eyþór, Oddvar, Sally og Erlend. þau eru öll í Media skólanum hérna. Þynkan er aðeins að segja til sín en það er að jafna sig því að við elduðum svo góðan mat... hamborgarahrygg og alles...
love and kisses...
k