kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Yesss!!!

Vúbbí... ég er búin að vera að leita að nýrri íbúð, afþví að þessi sem ég er í núna er alveg út í rassgati viborgar... bara ég og hinir útlendingarnir, sem reykja í stigaganginum og hirða ekki stubbana upp eftir sig... arg og svo heyri ég alltaf í ástarópum konunar við hliðana á!! frekar pirrandi... alla vega þá er þessi íbúð sem ég er í núna líka of dýr fyrir mig eina hérna úti. En ég var svo heppin að ég fann íbúð sem ég og Katý skoðuðum í dag, hún er á Jernbanegade 14, í miðbæ Viborgar (á Hverfisgötunni ;)) og er 45fm2, 2 herbergja, ótrúlega björt og fín... ég fæ hana afhennta 15 júlí... YESSS ég er svo ótrúlega glöð, það er þungu fargi af mér létt við að vera búin að finna íbúð. en hér til hliðar er linkur inn á myndirnar af íbúðinni....

annars er snjórinn laungu farinn og auðvitað rignir!.... hrmf

Komið hefur í ljós að vaktmaðurinn sem vissi ekki að reykingarleysinu, eyðilagði niður talningakerfið. Reynst hefur erfitt að fá varahluti í ´79 módelið af niður talningarkerfinu...enda var það frammleytt á síðustu öld!!! En spurst hefur til auka hluta í kerfið og er áætlaður tími í endur talningu reykingarleysisins mánudaginn 5 Febrúar.

Og hvað haldið þið að húsfrúin hafi gert um daginn?? ég bakaði mína fyrstu Marensköku!!! ég er ekkert smá stollt...Marenskaka með rice crispeis og rjóma með after eight á milli! ég, Katý og Natascha fórum til Maríu bekkjasystur okkar í smá saumaklúbb um daginn og þar bauð ég upp á marens kökuna, nema hvað að ég á ekki kökudisk eða tupperware kökuformsdúnk og var hjólandi til Maríu, þannig að ég náði ekki að setja rjóman á kökuna fyrr en ég var komin til Maríu, þannig að kakan var aðeins hörð og tyggjóleg eitthvað... en bragðgóð engu að síður... en afþví að ég er búin að fá nýja íbúð þá ætla ég að fagna því með bekkjarsistkynum mínum á morgun með mjúkri marensköku... vona að þetta heppnist...

tjútt og lú

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

excellent!
til lukku mín kærasta!! (með kökuna og íbúðina!)
frábært! lítur glimmrandi vel út!
nú þurfum við fríður að fara að drullast....
-og hjálpa til við flutninginn!
gosh!

:o)
kossar&knús

1.2.2007, 22:16  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Heyrðu vaktmaðurinn hennar Margrétar drottningar klikkaði líka eitthvað á reykleysinu, þið eruð svo samstíga þið hefðarfrúnnar ;) Til hamingju með íbúðina aftur - glæsileg íbúð. Ég hlakka til að gæða mér á marenstertu í fyrramálið... nammi namm. Sjáumst

1.2.2007, 22:50  
Blogger Fríður sagði...

Til hamingju með íbúðina, ekkert smá sæt.. ég hætti að reykja 1.feb og er alveg að standa mig með prýði.. meira að segja búin að detta í það og allt.. og það var ekkert reykt...

Ég ætla að taka svo myndir af nýju íbúðinni minni og setja inná síðuna mína... getur þá skoðað

Ég tjatta við hana fríð og við plönum ferð út til þín...

kiss kiss og gangi þér vel með bakstur og reykleysi

22.2.2007, 22:20  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með nýju íbúðina, virkar voða kósý ;-)
Knús & koss.

24.2.2007, 10:33  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim