kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

þriðjudagur, janúar 16, 2007

dagur 1.

í dag er dagur 1 af því að vera reyklaus að EYLÍFU!!! og vil ég óska mér til hamingju með daginn. ÉG skal verða reyklaus !!!
ég átti æðislegt jólafrí á íslandi og kom hingað út aftur þann 7 jan... það er búið að vera 5 daga helgarfrí í skólanum... ég var að verða smá ... bara smá... sjálfhverf og skrítin, en það er bara gott fyrir mann.
Mér, Katý, Mimi og Nunu var boðið í matarboð til Baneu og Ezra, en Ezra var að útskrifast úr byggingarverkfræði... það var æðislegt, mikið drukkið af rauðvíni, mikið talað og aðeins farið á trúnó... uppskrift af góðu kvöldi.
Jói "besti kærasti í heimi" er svo góður við mig, hann keypti handa mér nýtt og betra hreiður, sofa altso. Takk ástin mín þú ert bestur...hreiðrið var á útsölu í Bilka, gamli sófinn er svona banana laga og það er eginlega ekki hægt að kúra í honum, eginlega bara hægt að bjóða drottningunni í te í sófanum, maður situr svo beinn í honum... BÆ BÆ hryggskekkja.
ble

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Bíddu bíddu... fá prinsessur þá ekki síðasta tesopann í sófanum??
Annars innilega til hamingju með dag nr.1 Ég er svo ánægð með þig og ætla að styðja þig af öllum mínum mætti í reykleysinu :o) Lengi lifi reykleysingjar - húrra húrra húrra!!!

16.1.2007, 22:27  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim