kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Góð heimferð

Ég fór heim til Íslands síðasta fimmtudag og kom heim til Viborgar á mánudaginn, ég fór í jarðaför til afa Steina á föstudaginn, ótrúlega falleg athöfn og gott að hitta fjölskylduna þó að aðstæður mættu hafa verið aðrar...en já ég hafði það mjög gott heima hjá m+p og hér með vil ég þakka þeim fyrir að hafa boðið mér að koma heim... ég hafði alveg ótrúlega gott af því. mér fannst æðislegt að hitta Steina og Helgu og geta svona aðeins verið með þeim. Hitti svo Katrínu, Höllu og Maríu í smá saumó sem var haldinn heima hjá Maríu og Vífli (vona að þetta sé rétt skrifað) hehe.... svo hitti ég Dísurnar mínar... Þórdísi og Hafdísi.. ohh ég á svo góðar vinkonur... takk fyrir síðast elskurnar.
Ferðalagið heim til Viborgar tók frekar langan tíma en það hafðist á 15 tímum... enda kom ég heim og svaf svo í 14 tíma...ekki amalegt það.
Tóbias vinur okkar gisti svo hjá okkur frá mán til Þri en hann býr í Haderslov, við skutluðum honum svo heim í gær (þri) en fórum í smá road trip í leiðinni og sáum svona "live" víkinga safn.. þetta var eftirlíking af húsum víkinga, húsin eru byggð á sama hátt og á víkingatímanum... mjög merkilegt allt saman og það voru krakkar og kennarar í 8 bekk sem voru þarna og lifðu eins og víkingarnir.. í eins fötum, notuðu sömu eldunar aðstöðu og upphitunar aðferðir á húsin... opinn lang eldur í svefnskálanum.... allt alveg æðislega spennandi og gaman að sjá.
Annars var mjög gott að koma heim til Jóa sína en hann er að fara að vinna á morgunn og á föstudaginn.
Eftir heimferðina er ég alveg uppfull af orku en veit ekkert hvar ég á að byrja... en ég ætla að láta skólan ganga alveg fyrir öðrum hugmyndum sem eru að ásækja mig núna...
ég er alveg ótrúlega léleg að taka myndir á digital vélina þannig að það er ekki mikið af nýjum myndum sem ég get sett inná síðuna...ég er mest búin að vera taka svart/hvítar myndir á eldgamla myndavél sem maður horfir niður í þannig að þið veriðið bara að bíða aðeins eftir því að ég fari að nota digitalvélina aftur :)

over and out and about...
k

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

kata mín
Okkur þótti gott að fá þig heim. og þú veist að þau systkini þín dýrka þig og dá.....
Okkur pabba hlakkar allveg ofboðslega til að koma til ykkar.

gangi þér vel í skólanum og Jóa í vinnuni :-)
þín mamma

26.4.2006, 18:36  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ótrúlega gaman að sjá þig líka.
-bjargaðir mér alveg ;o)
þúsund kossar

27.4.2006, 20:39  
Anonymous Nafnlaus sagði...

það var rosagaman að hitta þig loksins í perló!!

1.5.2006, 00:03  
Blogger Fríður sagði...

Hæ Kata mín... samhryggist þér með afa þinn... Leiðinlegt að ég náði ekki að hitta á þig líka..

Kannski maður þurfi bara að leggja smá pening í bauk og reyna bara að koma og heimsækja þig.

Love u and miss u

1.5.2006, 04:48  
Blogger Dilja sagði...

elsku súkkulaðið mitt, samhryggist þér með afa þinn . En það er gott að sjá að þið hafið það gott í Viborg. Ég hlakka til að sjá ykkur.
Hvar er Jói kominn með vinnu annars? spennó:)

kær kveðja frá california baby
diljá

2.5.2006, 00:56  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Very nice site! http://www.nissan-skyline-7.info/1975-chevrolet-silverado.html debt consolidate program Winona chrysler Genie in a bottle cosmetics

3.3.2007, 09:20  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim