Nú er maður bara fluttur í íbúðina og kominn með adsl!
Já ég er lifandi.... rosalega getur maður eitt tímanum í ekki neitt...upptekinn af því að gera ekki neitt...
sko það er nú margt búið að gerast síðan síðast...ég flutti úr heimavistarskólanum heim til Þóru&Benna og er búinn að búa þar þangað til núna á laugardaginn... er búinn að fara 3 ferðir til Århus í Ikea... Hitti Diljá og sá ótrúlega flotta húsið sem hún býr í... Búinn að flytja í íbúðina mína á Ellekonebakken 14 2tv, 8800 Viborg...kominn með ADSL tengingu þannig að nú get ég bloggað eins og ég vill... búinn að kaupa sófa, 2 hægindastóla, eldgamla kistu, rúmm, hillu og allt litla dótið sem vanntaði...búinn að kaupa mér líkamsræktarkort og í kaupbæti fékk ég utanlandsferð fyrir 2 til hvaða stórborgar í Evrópu sem er FRÍTT!!! er búinn að bjóða Jóa með mér til Prag... annars hef ég lítið farið í ræktina, er búinn að hjóla svo mikið að það er ekki mikil orka eftir handa Jesper einkaþjálfa ( sem var líka frítt með kortinu).
Jói kom til mín í síðustu vikunni í ágúst... vá hvað það var gott að sjá hann...það er alveg erfitt að vera svona í sittihvoru landinu, en ef að maður telur bara dagana niður þangað til maður hittist næst þá gengur þetta betur. Við gerðum nú mest lítið en að vera sogskálar á hvort öðru.. jú fórum til Århus yfir helgi og gistum hjá frænku minni, fórum í Ikea og svona kíktum á úrvalið, völdum okkur rúmm og svona hitt og þetta...Svo náttlega eftir að hann fór þá fór heimþráin að láta á sér kræla, en ekkert eitthvað alvarlegt.
Annars gengur bara ágætlega í skólanum...soldið mikið sem maður á að skila núna í lok sept...merkilegt hvað það tekur mikinn tíma að vefa og bródera... á að skila 13 vefprufum, lita/vef verkefni sem tekur endalausann tíma að gera, og svo á ég líka að skila ofnu sjali ...og svo á líka að skila broderi verkefnunum ... phúu.. en þetta er allt saman í vinnslu og ég er að sjá fyrir endann á þessu,
Já ég held að ég geti nú samt varla verið hamingusamari...ekki nema að jói væri hérna úti hjá mér... svo mikill innri friður sem fyllir mann.... :) ohh hvað maður getur verið væminn...
ég eldaði mér "tilhamingumeðíbúðina, rúmmið og adslið" máltíð...saman stóð af kartöflum, svínakótilettum, sveppum, sósu og sallati...bara eins og á 5 stjörnu hóteli.
jæja það verður nú ekki lengra í bili...ætla að fara að sörfa aðeins...lesa öll hin bloggin :)
bæjó
3 Ummæli:
Til hamingju með allar mubblurnar þínar.. alltaf gott þegar maður er búin að koma sér vel fyrir heima hjá sér, snild að nota Skype... var ekkert smá gaman að heyra í þér í gær... gangi þér allt í haginn sæta mín :)
p.s Vildi bara segja þér að ég er búin að klukka þig... getur lesið um það á minni síðu....
messinn er líka smart!!
hahahaha
(annars fara að vakna óþægilegar spurnigar.. ef einhver liggur á hleri á skype-inu.. er þakki stella?!!)
en til lukku med det hele..
ég er mest ánægð með adsl-ið ;o)
rokk-on
Hæ.
Vildi bara minna þig á að ég er búin að "klukka" þig ;o)
Kveðja,
Helga Sv.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim