kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

fimmtudagur, september 22, 2005

maður bara klukkaður hægri vinstri!!

Já mér tókst að missa af stæró í morgunn því að ég lág bara enþá upp í rúmmi í makindum mínum... stætó keyrir til Skals á 2 tíma fresti þannig að ég var mætt um 10 og náði að telja þræðina í sjalið sjalið mitt (230 þræðir takk fyrir) og telja svo þræðina í gegnum kambinn á vefstólnum... (svona nú taka eftir!!!). Þetta kalla ég nú bara gott dags verk... svo hélt ferðinn heim á leið og ekki tóku nú verri húsverk við en það að, þvo þvott, elda og klára að taka upp úr kössunum. Nú sit ég fína fína sófanum mínum sem svona bei'ðevei var keyptur á "Loppemarked" hér í Viborg ásamt 2 hægindastólum, eldgamalli kistu og 2 kertastjökum og einungis kostuðu herleg heitin 1100kr danskar... :)
Já það er gaman að vera kominn í tengingu við ummheiminn... (1 eða 2 m í því ???) er búinn að tala við m&p og Stellu á skypinu og svo er msnið alltaf opið líka, alveg afskaplega gaman...
annars er nú ekki mikið að frétta... er bara að stressa mig fyrir þessum verkefna skilum í "vævning".
Þar sem að ég var klukkuð í gærkvöldi þá er ég búinn að vera í hinum stökustu vandræðum með hvað ég eigi að skrifa... á maður ekki að skrifa einhverjar 5 ónauðsynlegar staðreyndir um sig?? Ætla nú bara að láta ykkur vita það að það er ekkert "ónauðsynlegt" í sambandi við mig...hehe

1. þegar ég var lítil þá vildi ég vera Lína Langsokkur... mamma varð að setja í mig tígó á hverjum morgni og mála á mig frekknur... ég svaf líka öfugt í rúmminu og man ég að mér fannst það ekki neit svaka þægilegt að sofa með koddann undir fótunum... "Lína Langsokkur" hefur sett svip sinn á mín uppvaxtarár með því að ég elska röndótt og skemmtilega skrautlega sokka!!

2. Minn leyndasti draumur er að verða bóndakona.

3. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að skoða (versla) hreinsiefni af öllum stærðum og gerðum , já og allt sem viðkemur þrifnaði s.s þvottaefni, mýkingarefni, gólfsápur, handsápur, sjampó, klósetthreinsa, gúmmíhanska, gólfmoppur, plastpoka o.sfrv... (skildi þetta eitthvað með skipulagsáráttu mína að gera???)

4. Mér finnst skyr með rjóma, flatkökur með hangikjöti og annar íslenskur matur (skata) best í heimi.

5. Þetta er farið að vera soldið erfitt.... humm...
Að ég hugsa oftast fyrst um hvað aðrir vilja áður en ég hugsa hvað ég vil... þetta fer soldið í taugarnar á mér... en það er alltaf gott að vera góður við aðra :)

jæja nóg af bulli... ohhh nú á ég að klukka einhverja 5.... hvern er ekki búið að klukka? humm...
ég ætla að klukka Helgu Rún systur mína, Katrínu perlu, Katý sem er með mér í bekk, Hrafnhildi úr hinum skólanum og Sigrúnu BLEIKU vist að ég sá að hún var eitthvað að tjá sig um daginn...

Verð að fara að sofa... góða nótt :-*

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

dejligt at se dig her igen :o)
ha' det godt du sode pige :o)
anna :o)

23.9.2005, 18:01  
Blogger Fríður sagði...

Hahahahaha... vá hvað ég skil þig með hreinsiefnin.. ohhh ég elska að kaupa svoleiðis... og mér finnst ótrúlegt en satt gaman að þrífa, var einmitt að plana í hausnum á mér hvernig ég ætla að plana daginn á morgun og þrífa.. Þú er nú pínu Lína svona inn við beinin, allvegana þegar þú varst yngri.. en það er bara það sem við elskum við þig :)

23.9.2005, 20:22  
Anonymous Nafnlaus sagði...

HæHæ Kata.....


hvað þýðir að "klukka" einhvern??


Helga Rún(K)(K)

miss yoy

24.9.2005, 21:01  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Elsku Kata mín!
Til hamingju með afmælið ;-)
Kveðja,
Hafdís

29.9.2005, 13:55  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er alltaf gott að vera tímanlega. Vildi bara koma þessu að þar sem ég verð úti á afmælisdaginn þinn...

29.9.2005, 13:56  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim