kata sukkuladi

The hurrier i go, the behinder i get!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

ég er í ekta saumaklúbb...

...nema hvað að ég skil ekki nema 1/4 af því sem sagt er...hehe

já fyrsti skóladagurinn er kominn og farinn... var mjög strembinn þar sem að kennararnir töluðu og töluðu um hvað í vændum verður... ég var nú ekki alveg að skilja allt sem talað var um, en þar sem að við erum alveg 7 íslenskar í skólanum og nokkrar búnar að búa hérna í þó nokkurn tíma þá fær maður svona smjörþefinn af því hvað er að gerast...annars er munur á því hvað ég skil mikið eftir því hver er að tala.
Núna bý ég í Skals håndarbejdsskolen, er þar í 1 í 2manna herbergi, reyndar er ég ekki ein því að frú köngurlóarmamma með ungana sína 20 býr í horninu á herberginu. Er með fallegt útsýni yfir kornakur og svo heyrir maður í beljunum ef að glugginn er opinn sem hann er nú oftast því að það er svo heitt. reyndar ekki mikil sól, ringdi allan daginn í gær...ég vakna svo til að fara í morgunn mat kl 7:50 og á að vera mætt í minn skóla sem heitir Skals textilseminariet kl:8:20 því að þá er samverustund, sungin nokkur vel valin lög og svo er sagt hvað er að gerast á næstunni. Svo byrjar kennsla kl.8:30 og er til 12, svo aftur kennsla kl 12:45 til 14:30, nema þegar að ég er í bóklegafaginu (uppeldisfræði/kennslufræði). já ég er bara í einu fagi á dag t.d var ég bara í broderi (útsaum) í dag og fannst mér það ekkert smá skemmtilegt, svo á morgunn er vefnaður.. er að fara að vefa í huges vefstól!!!!! :) og á að brodera sessu á stól sem ég þarf að kaupa í gen´brugsen (held að maður segi þetta svona) í október... allt að gerast sko!!!
þetta er með því skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni þ.e að vera í skólanum...
jæja má ekki vera að þessu...er að verða of sein í broderi saumaklúbbinn sem er núna milli 7 og 9... OMG!!!! þetta er svo gaman!!!!
ok bæ

4 Ummæli:

Blogger Katrín sagði...

get alveg séð þig fyrir mér kringum allt þetta skemmtilega dundur, föndur, saumadót !!! frábært !! Hlakka til að sjá afraksturinn dúllan mín, GÓÐA SKEMMTUN :-)

10.8.2005, 21:40  
Anonymous Nafnlaus sagði...

geðó smeðó!
til lykke med det hele..
já..við bíðum bara eftir myndum
;o)
kalli könguló (sem býr í stofuglugganum) biður að heilsa frændum sínum í danmörku...

11.8.2005, 15:59  
Blogger Fríður sagði...

Svo veistu ad eg kem i heimsokn bradum, ta verduru buin ad sauma ut svefnsofa fyrir mig >)

11.8.2005, 19:21  
Blogger Helga sagði...

Hæ, hæ.

Gaman að heyra að þú skemmtir þér vel :o) Verð að viðurkenna að ég öfunda þig svona pínu ;o) Allavegana, have fun.

Kveðja,
Helga Sv.

12.8.2005, 13:58  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim